Komin í pásu
18.6.2009 | 07:19
Ætla að láta lítið fyrir mér fara hér á blogginu í sumar. Ekki að það hafi farið mikið fyrir mér á síðustu misserum
Hef engan tíma í þetta.
Óska ykkur yndislegs sumars, njótið vel og munið að vera í núinu 
Kærleikur á ykkur 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hlaut að vera
30.5.2009 | 08:09
Var ekki að trúa þessum fyrstu tölum í gær.
Sat í rólegheitum og talaði í símann kl 21:33 í gær og þá fór allt af stað. Það fyrst sem ég hugsaði var einmitt,,vona að þessi hafi ekki átt upptök sín fyrir austan, því ég fann öruggleg svipað fyrir honum og skjálftanum fyrir ári síðan.
Mikill munur á 3,9 á Richter eða 4,7, en þessi var auðvitað bara í bakgarðinum hjá mér, eða þannig
, fegin að ég var ekki í Lóninu.
Frábært að enginn meiddist og ekkert skemmdist.
Knús á ykkur
|
Skjálftinn mældist 4,7 stig |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Trúi á topp 5
15.5.2009 | 17:33
Já, held bara að það gæti orðið topp 5 hjá okkur í ár
En ég fann þetta flotta video síðan 1995,,þetta fannst mér æði þá, og finnst lagið enn æði, en að horfa á hann standa þarna og það gerist einhvernvegin ekkert, nema hann syngur, Hann kæmist ekki langt með þetta í dag
, en hann lenti í 3 sæti 1995. Njótið
En sætur er hann 
|
Veðbankar spá Íslandi 7. sæti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 16.5.2009 kl. 09:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Stolt af mínu fóki :)
12.5.2009 | 21:29
Hún stóð sig frábærlega. Ég var ekkert hrifin af þessu lagi í upphafi, en það vinnur á, og Jóhanna Guðrún líka, ofboðslega falleg þegar hún brosir, mætti gera meira af því 
Annars fóru öll "lögin mín" áfram, þannig að ég get ekki verið annað en sátt. Og nú er bara að bíða og sjá hverjir fara áfram á fimmtudaginn,,,er illa svikin ef Alexander fer ekki áfram með Fairytale. Það væri bara gaman ef allar norðurlandaþjóðirnar verða með á laugardaginn.
Ég splæsti í þrjú lög í kvöld Svíþjóð, Portúgal og Borsnia & Herzegonia, gat ekki valið eitt 

|
Ísland komið áfram |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Er bara enn með æði fyrir þessu :)
7.5.2009 | 07:44
Loksins er fólk að fatta hvað þetta er flott lag,,,enjoy 
Hér er smá auka frá Alexander http://www1.nrk.no/nett-tv/klipp/492658 svona "live" bara með fiðluna að vopni 
Langar að senda út kærleika
,,margir reiðir hér á blogginu, en minni á að það lagar ekkert að skíta fólk út. Það eru alltaf tvær hliðar á öllum málum 
Bloggar | Breytt 9.5.2009 kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Alveg fallin fyrir þessu lagi,,áfram Norge :)
14.4.2009 | 20:04
Þetta er ekki að virka 
Hér er linkurinn http://www1.nrk.no/nett-tv/klipp/474128 ,,Youtube er ekki að virka.
Þarna inni er líka hæg að horfa á öll myndböndin :) uppáháaldssíðan mín þessa dagana
Bloggar | Breytt 17.4.2009 kl. 07:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Málþingið góða
21.3.2009 | 09:39
Fór á þetta fína málþing hjá Sjónarhóli á fimmtudaginn. Yfirskriftin var Hver ræður för? Málþing um félagslega stöðu barna með sérþarfir.
Dagskána er hægt að sjá hér. Þetta voru bæði fagfólk og foreldrar sem töluðu. Og fannst mér í raun jafn fróðlegt að hlusta á báðar hliðar.
Það sem stendur upp úr að mínu mati er þó Jarnþrúður Þórhallsdóttir, meistaranemi í fötlunarfræðum og ráðgjafi á Sjónarhóli. Hún var að tala um skynjun fólks sem er á "einhverfurófi". Það sem hún talaði um þar ætti að vera skyldulesning fyrir alla sem koma að börnum/unglingum á þessu rófi. Því skilningurinn er nánast enginn. Það þekki ég vel sjálf.
Hún sagði meðal annars:
* Þau heyra oft hljóð sem við hin tökum ekki eftir, eins og hljóð í ofnum, raftækjum og einnig heyra þau hljóðin á undan okkur hinum. Þannig að það er ekki skrítið að þau eigi erfitt með að vera í bekk með 26 öðrum (eins og minn), þar sem eru óteljandi hljóð að trufla.
* Sjá umhverfið oft í pörtum, þurfa að púsla saman umhverfinu (það gerist ekki sjálfkrafa eins og hjá flestum.
* Þau sjá blikkið í flúorljósum (flúorljós blikka mjög hratt, svo hratt að fæst okkar sjá það eða átta sig á blikki, og þá er ég ekki að tala um ljós sem orðið lélegt og blikkar þess vegna), í öllum skólum landsins eru flúorljós
. Það geta allir skilið hvað það er truflandi að vera alltaf með blikkandi ljós yfir sér, og eiga samt að vera að einbeita sér að námsefni 
* Eiga erfitt með að horfa í augu fólks, fá jafnvel höfuðverk og stingi í augun þegar þau reyna að þóknast fólki og horfa í augun á meðan talað er við þau.
* Lyktarskynið er ofur viðkvæmt, og getur tekið yfir alla hugsun. T.d. inn í bekk, ef þau eiga að vera að taka eftir í kennslu, en finna einhverja lykt, þá tekur lyktin yfir alla athygli og þau missa alveg af því sem verið var að kenna. Og eru svo skömmuð fyrir að fylgjast ekki með.
Þetta er svona það sem ég man, en auðvitað sagði hún margt fleira og ætla ég að reyna að komast yfir glærurnar sem hún var með. Það var annar sem stóð upp úr á þessu málþingi og hann er bæði foreldri og fagmaður, en ég treysti mér ekki til að hafa það eftir hér.
Langar að benda þeim á sem hafa áhuga, að það verður sett inn upptaka af þessu þingi á næstu dögum inn á síðuna hjá Sjónarhóli.
Er enn að melta upplýsingarnar sem ég fékk þarna en veit að þetta á eftir að hjálpa mér í að standa eins og klettur við hlið sonar míns hvað sem á dynur, og gefast aldrei upp.
Kærleikur á ykkur 
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Félagsleg staða barna með sérþarfir - Málþing
19.3.2009 | 07:14
Er að fara á málþig í dag, það heitir Hver ræður för , er mikið spennt og vona að ég fái einhver svör.
Það er ekki hægt að lýsa því hvernig er að eiga barn/ungling sem á enga vini,,en ég ætla ekki að gefast upp og skal finna leiðir til að koma honum á rétta braut. Vonandi fæ ég tillögur þarna (allar tillögur eru vel þegnar).
Segi ykkur betur frá þessu þegar málþingið er búið.
Kærleikur á ykkur 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ótrúlegt að enginn skyldi slasast alvarlega
14.3.2009 | 11:27
Mikið er skelfilegt að sjá húsin "fljóta",,,,en alveg ótrúlegt að enginn skyldi farast.
Bjó á þessu svæði fyrir nokkrum árum og kom oft til Namsos. Fallegur bær, eins og reyndar flestir bæir í Noregi :)
|
Sjö bjargað í Noregi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Flott lag frá Norge, á leið til Moskvu
21.2.2009 | 22:06
Var að klára að horfa á Norsku Eurovision úrslitin,,,,frábært lag og flytjandi sem vann,,á örugglega eftir að gera það gott í Moskvu. Var að reyna að setja inn youtube myndband af laginu,,en það er ekki að takast hjá mér. Prófa hlekk í staðinn
http://www.youtube.com/watch?v=wtVDRha4PIA
Kíkið á lagið og segið mér hvað ykkur finnst 
Euro kveðjur á ykkur 
Bloggar | Breytt 22.2.2009 kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)







fifudalur
heidathord
anna
asagreta
elisabeta
eydis
milla
zeriaph
hallarut
skessa
helgadora
ringarinn
ingabesta
jahernamig
ingvarg
jonaa
kleopatra
roggur
bidda
ragnarfreyr
schmidt
sirrycoach
elenora
brylli
ein
adhdblogg
birgitta
christiancoaching
opna
ellasiggag
umhetjuna
lillo
neytendatalsmadur
gudrunb
don
nonniblogg
robertb
sigurbjorns
valgeirskagfjord